Að gera EITTHVAÐ sem bjargað lífi er alltaf mikilvægara en gera EKKERT. En stór hluti af þvi að bjarga lífi er að vita hvað þarf að gera.
Með því að sækja endurlífgunarnámskeið stór aukast líkurnar á að viðkomandi viti hvað gera þarf þegar á reynir.
Árið 2024 sóttu 14.688 manns skyndihjálparnámskeið hjá Rauða krossinum varst þú einn af þeim? Vel gert! Ef ekki, þá er hægt að skrá sig á námskeið á vef RKÍ https://www.raudikrossinn.is/um-okkur/namskeid-og-vidburdir/?courseType=firstAid
Til viðbótar sóttu 186 grunnendurlífgunarnámskeið á Landspitala og 62 á Sjúkrahúsinu á Akureyri auk þess sem gera má ráð fyrir að haldin hafi verið slík námskeið á fleiri heilbrigðisstofnunum sem ekki eru talin upp hér.
Enn fremur sóttu 955 heilbrigðisstarfsmenn sérhæfð endurlífgun barna og fullorðinna.
Við getum því sagt með stolti að um 16000 manns hafi sótt endurlífgunarnámskeið árið 2024