Markhópur: Heilbrigðisstarfsmenn sem gætu lent í því að þurfa að endurlífga nýbura s.s. bráðalæknar, svæfingalæknar, barnalæknar, fæðingalæknar, sjúkrahúslæknar (unglæknar), ljósmæður, hjúkrunarfræðingar og sjúkraflutningamenn.
Markmið: Að starfsmenn séu færir um að veita nýburum sérhæfða endurlífgun, við fæðingu og fyrstu klukkustundir lífsins auk þess að stjórna aðgerðum á vettvangi.
Kennsluaðferðir: Fræðilegur hluti námskeiðsins fer frá á námskeiðsvef ERC (CoSy) og lýkur með forprófi. Á klíniska hluta námskeiðsins fer fram sýnikennsla, verklegar æfingar og fyrirlestrar
Lengd: 10 klukkustundir.
Námsmat: Verklegt og skriflegt próf í lok námskeiðs.