Sérhæfð endurlífgun barna II - EPALS

Markhópur: Barnalæknar, bráðalæknar, svæfingalæknar, sjúkrahúslæknar (unglæknar), heimilislæknar, bráðatæknar og hjúkrunarfræðingar á barna- , slysa- og gjörgæsludeildum.

Markmið: Að starfsmennirnir séu færir um að veita börnum sérhæfða endurlífgun og stjórna aðgerðum á vettvangi.

Kennsluaðferðir: Sýnikennsla, verklegar æfingar og fyrirlestrar

Lengd: 18-20 klukkustundir.

Endurmenntun: Skírteini gildir í fimm ár og er endurmenntun möguleg með tvennum hætti. Annars vegar að endurtaka heilt námskeið eða endurmenntunarnámskeið 4 klst.  Æskilegt er að hafa stutta upprifjun á vegum vinnustaðarins árlega (2 klukkustundir) þar sem megin áherslan er á verklegar æfingar og samhæfingu aðgerða.

Námsmat: Forpróf úr vefnámi fyrir klíniskt námskeið. Símat og verklegt próf í lok námskeiðs.